top of page

Nám við Myndlistaskólann á Akureyri


ree

Núna í vor ákvað ég að sækja um í listnámi hér á Akureyri og komst inn í Myndlistaskólanum á Akureyri inn á listhönnunarbraut.


Fyrirkomulagið hér er ögn öðruvísa en það sem ég hef vanist fram til þessa og það er kannski sérstaklega vegna þess hversu lítill skólinn er.



ree

Við erum aðeins þrír nemendurnir í bekknum og sjö nemendur alls í skólanum. Við lærum öll saman í sama ríminu undir handleiðslu eins kennara hverju sinni.


Aðstaðan er mjög þægileg og heimilisleg, hver með sitt pláss, lítið eldhús inni í kennslustofunni og góð kaffivél eins og hvern gæti dreymt um.



ree

Nú er ein vika liðin og fyrirkomulagið aðeins farið að skýrast.


Fyrsta námskeiðið sem við tökum er kennsla á Adobe Illustraitor þar sem við höfum verið að læra á helstu verkfæri og aðferðir sem hægt er að beita í því forriti.


Hingað til hef ég mest unnið stafrænt á Adobe Photoshop og ég myndi helst lýsa muninum á þeim forritum þannig að Photoshop get ég meira notað í teikningu og myndvinnslu en þegar unnið er á Illustraitor þarf að vinna myndirnar frekar sem einskonar klippimyndir.



ree

Fyrsta vikan hefur verið mjög skemmtileg og það er frábært að prófa eitthvað nýtt sem er krefjandi á annan hátt en maður hefur áður reynt.


Þetta námskeið mun standa yfir í þrjár vikur í viðbót og eftir það tekur eitthvað nýtt og spennandi við.


Þetta er allt rétt að byrja.



ree



Comments


bottom of page